Thorpex er viðamikið alþjðlegt verkefni sem beinist að því að bæta veðurspár 1-14 daga fram í tímann. Verkefnið beinist einkum að þáttum er áhrif geta haft á hönnun og þróun færanlegs athugananets og svarað geta spurningum á borð við: "Hvar er best að mæla í dag til að fá betri veðurspá fyrir næstu helgi?"