Ýmis konar rannsóknir fara fram á áhrifum fjalla og landslags á andrúmsloftið.
Hér er innrauð mynd sem tekin var úr gervitungli þegar fjallabylgjur mynduðust í suðvestanátt yfir Íslandi. Á myndinni má sjá háreist bylgjuský yfir Tröllaskaga. Í skýinu eru göt og eru þau yfir hæstu tindum, þar sem bylgjan er ekki eins háreist og yfir dölunum.
Yfir Grænlandssundi eru bylgjur sem mynda fleygboga í neðri loftlögum. Eiga þær uppruna sinn yfir fjöllunum á Vestfjörðum.
Fjallabylgjur yfir Íslandi - innrauð mynd úr gervitungli
The above image shows linear mountain waves over the Denmark Strait and secondary waves (non-linear) over Iceland. Notice that the wave cloud over N-Iceland indicates less wave activity over mountain peaks than over the valleys, indicating secondary waves (Ólafsson and Bougeault, JAS 1997)