Sólreiknir

Heimasíða
Heim > Sólreikninir
Reiknivél fyrir sólarupprás eða sólsetur
Staður:
Gráður:
Mín:
Sek:
Breidd:
Norðlæg=+
Suðlæg=-
Klst frá GMT
(0 á Íslandi)

Sumartími
("Nei" á Íslandi)

Lengd:
Veslæg=+
Austlæg=-
Athugið: Veljið veðurstöð eða bæjarfélag í veðurstöðvalistanum. Til að slá inn hnattstöðu
að eigin vali veljið Lengd/Breidd efst í listanum og sláið inn rétt gildi í reitina til hægri.
Mán:
Dag:
Ár:



Tímajöfnuður
(mínútur):
Miðbaugsbreidd
(gráður):
Sólarupprás:
Sól í hádegisstað:
Sólsetur:
Tímasetning:
Staðartími
UTC

Athugasemdir:

  1. Veljið staðsetningu frá valbleðli fyrir veðurstöðvar, eða velið lengd/breidd á valbleðli og sláið inn hnattstöðu. Hægt er að velja hvaða staðsetningu sem er í heiminum. Vestlæg lengd og norðlæg breidd eru jávæðar, þ.a. lengd og breidd yfir Íslandi eru jákvæðar tölur.
    • Lengd og breidd mega vera í gráður/mín/sek (t.d. 64/07/41) eða gráður + tugabrot (t.d. 64.128))
  2. Fyrir staðsetningar erlendis þarf að velja frávik frá meðaltíma í Greenwich, þ.e. klst frá GMT (sjá t.d. þetta kort). Einnig þarf að tiltaka hvort notast er við sumartíma og vetrartíma á þessum stað.

  3. Útskýringar á liðum

    • Tímajöfnuður (á ensku equation of time) er stjarnfræðilegt heiti yfir þá mismuninn á sönnum sóltíma og meðaltíma (sem venjulegar klukkur sína). Um þetta má lesa í ágætri grein á vísindavef Háskóla Íslands.
    • Miðbaugsbreidd (á ensku solar declination) hvers dags er jöfn þeirri breiddargráðu þar sem hádegisstaða sólar er 90°. Þar varpar lóðrétt stöng engum skugga á hádegi. Vegna möndulhalla jarðar breytist þessi stærð frá því að vera rúmlega 23° á sumarsólstöðum í 0° á jafndægrum og í -23° á vetrarsólstöðum.Um þetta má lesa í nokkrum greinum á vísindavef Háskóla Íslands.
    • Sólarupprás og sólsetur Þær tímasetningar sem reiknaðar eru hér taka ekki tillit til landslags nærri uppgefinni hnattstöðu (t.d. fjalls í austurátt). Hinsvegar er reynt að meta áhrif ljósbrots í andrúmslofti, en þau áhrif lengja daginn um nokkrar mínútur.
    • Hádegisstaða sólar Er sá tími þegar sólinn gengur yfir lengdarbaug valinnar staðsetningar. Á þessum tíma fellur skuggi af lóðréttri stöng í hánorður (fyrir norðan miðbaugsbreidd) en suður fyrir sunnan miðbaugsbreidd.
    • Staðartími er gefin upp á tólf tíma formi og tiltekið hvort um fyrir hádegi (FH) eða eftir hádegi (EH) er að ræða. Ef sólarupprás og sólarlag lendir ekki á sama degi kemur það fram í staðartíma.
    • UTC (á ensku Universal Time Coordinated) er alþjóðlegur tímastaðall sem kemur í stað meðaltíma í Greenwich (GMT). Þessi staðall notar tuttugu og fjögurra tíma form fyrir klukkutíma (t.d. 23:44:16).

  4. Fyrir staðsetningar norðan norðurheimskautsbaugs, eða sunnan suðurheimskautbaugs geta sólarupprás og sólarlag lent á öðrum degi þegar valinn tími er nægilega nærri sólstöðum. Í því tilviki bætist dagsetning inn í viðkomandi dálka. Einnig getur hádegisstaða sólar verið óreiknanleg (N/A) á vetrarhveli fyrir þessar staðsetningar, ef sólin kemur ekki upp á þeim degi sem valinn er.

  5. Milli 72° N og S er nákvæmni útreikninganna um ein mínútna, utan þessara breiddargráða getur skekkjan verið allt að 10 mínútur.



NOAA
Emblem

Sólreiknir þessi er hannaður af Christopher R. Cornwall við
Geislunardeild (Surface Radiation Branch) Bandarísku Veðurstofunnar (NOAA).
Notað með góðfúslegu leyfi höfundar.