Þessar radarmyndir sýna hvernig gosmökkurinn þróast fyrstu klukkustundir eldgossins. Gosmökkurinn sést ekki fyrr en hann nær 6-8 km hæð. Gosmökkurinn kemur fyrst greinilega fram sem lítill blár blettur á Vatnajökli upp úr miðnætti. Með góðum vilja má þó sjá ummerki hans í allt að klukkutíma áður. Mökkurinn stækkar þegar á líður nóttina, og nær hámarki milli klukkan 4 og 5.
Athugið að veðurradar er ekki hárnákvæmt staðsetningartæki. Staðsetning upptaka virðist of sunnarlega, og einnig er hæðin á mekkinum ekki nákvæmlega ákvörðuð í þessari fjarlægð frá radarnum. Gróft mat á hæðar-óvissunni í þessari fjarlægð er um 3 km.












Halldor Björnsson 02/11/04