Veðurstofa Íslands hefur opnað vefsíður með flugveðurupplýsingum.
Aðgangur er öllum heimill, en til að fá hann þurfa einstakir notendur að
gera samning við Veðurstofu um áskrift. Fá þeir þá aðgangsorð að
vefsíðunum og upplýsingum þeirra.
Síðurnar innihalda eftirfarandi upplýsingar:
- Flugvallarveðurathuganir (METAR/Met Report) og sérstakar
flugvallarveðurathuganir (SPECI/SPECIAL) fyrir alla helstu flugvelli
landsins.
- Flugvallarspár (TAF) sem gilda í 24 og 9 tíma, sendar út allan
sólarhringinn fyrir Keflavík, Reykjavík, Egilsstaði og Akureyri.
- Flugvallarspár (TAF) sem gilda í 9 tíma, dreift á opnunartíma
flugvallanna fyrir Ísafjörð, Sauðárkrók, Húsavík, Hornafjörð og
Vestmannaeyjar.
- Breytingar á flugvallarspám (AMD TAF).
- Flugveðurskilyrði yfir Íslandi, dreift að degi til.
- Viðvörun um hættulegt veður, SIGMET, innan íslenska
flugstjórnarsvæðisins.
- Vindakort í mismunandi hæðum.
- Tilkynningar frá flugvélum um kviku og ísingu.
- Veðurtunglamyndir.
- Almennar veðurathuganir og veðurspár.
- Almenn veðurspákort.
| Ef þú hefur notandanafn
geturðu slegið það inn í hólfið hér til hliðar og smellt á
hnappinn til að komast á þína slóð. |
|