Safnið er sérfræðisafn á sviði veðurfræði,
haffræði, jarðskjálftafræði, snjóflóða- og ofanflóðarannsókna og skyldra
fræðigreina.
Safnkostur:
Erlend fagtímarit og ýmsar ritraðir eu meginuppistaðan í ritakostinum. Keypt tímarit
eru hátt í 100 en heildarfjöldi rita sem berast reglulega er mun meiri. Meðal efnis
eru ritraðir frá WMO - World Meteorological Organization - og frá veðurstofum
ýmissa landa. Skráð rit eru nú yfir sjö þúsund en því miður er skráin ekki
leitarhæf utan Veðurstofunnar. Tímarit má þó finna í Gegni, skrá Landsbókasafns Íslands -
Háskólabókasafns, en safnkostur Veðurstofunnar verður skráður í nýtt landskerfi
bókasafna strax og það verður mögulegt.
Þjónusta:
Öllum er velkomið að leita til safnsins. Veitt er upplýsingaþjónusta, útveguð
millisafnalán og leitað heimilda fyrir þá sem þess óska, bæði í ritakosti
safnsins og í ýmsum gagnasöfnum, -aðallega þó öðrum bókasöfnum - innlendum og
erlendum. Rit safnsins eru til afnota á staðnum en síður til útláns. Hægt er að
fá ljósrit. Lesaðstaða er fyrir 3-4 á safninu.
Afgreiðslutími:
Safnið er opið kl. 8-16 alla virka daga. Ráðlegt er fyrir utanaðkomandi að hafa
samband áður en komið er í heimsókn þar sem starfsmaður er einn og getur þurft að
bregða sér frá.
Póstkassinn:
Fyrirspurnir, beiðni um ljósrit, athugasemdir, ábendingar, tillögur um efniskaup og
annað sem notendur vilja koma á framfæri
Bókasafnsfræðingur Veðurstofunnar er Guðrún Pálsdóttir.
05.02.2007, GP |
Bókasöfn
Bóksölur
Gagnasöfn
IPCC skýrsla um
loftslagsbreytingar
Norrænar samskrár
Ýmis félög og stofnanir
|